Samskipti íslenskra stjórnvalda við samstarfsríki varðandi refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi og Hvíta-Rússlandi frá 2010.

Frumkvæðismál (2203234)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
01.04.2022 32. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Samskipti íslenskra stjórnvalda við samstarfsríki varðandi refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi og Hvíta-Rússlandi frá 2010.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, Maríu Mjöll Jónsdóttur skrifstofustjóra og Veturliða Þór Stefánsson deildarstjóra frá utanríkisráðuneyti.

Fleira var ekki gert.
30.03.2022 31. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Verklag og framkvæmd ráðherra vegna refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gagnvart Rússlandi og Hvíta-Rússlandi
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður gerði grein fyrir ósk utanríkisráðuneytisins um að þau gögn sem nefndin óskaði eftir hinn 21. mars sl. yrðu bundin trúnaði, sbr. 2. mgr. 51. gr. þingskapa. Nefndin samþykkti að veita gögnunum viðtöku og bauð formaður nefndarmönnum að kynna sér trúnaðargögnin. Aðrir nefndarmenn sem ekki óskuðu eftir að kynna sér trúnaðargögnin, þ.e. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Bjarni Jónsson óskuðu ekki eftir að kynna sér gögnin og véku því af fundi kl. 09:23.

Þá komu á fundinn María Mjöll Jónsdóttir skrifstofustjóri, Gísli Rúnar Gíslason og Veturliði Þór Stefánsson frá utanríkisráðuneyti. Gestir kynntu gögnin og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Gestir véku af fundi kl. 10:01 og kom þá Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir aftur á fund.

Þá ræddi nefndin málið. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lagði til að óskað yrði eftir gögnum um samskipti utanríkisráðuneytis og utanríkisráðherra við önnur ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands og við íslensk sjávarútvegfyrirtæki vegna kjörræðismanns Íslands í Hvíta-Rússlandi í kjölfar fregna af því að hann kynni að vera settur á lista yfir aðila sem sæta þvingunaraðgerðum. Jafnframt er óskað eftir þeim gögnum sem lögð hafa verið fyrir ríkisstjórn vegna málsins. Var það samþykkt.
23.03.2022 30. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Verklag og framkvæmd ráðherra vegna refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gagnvart Rússlandi og Hvíta-Rússlandi
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóra, Maríu Mjöll Jónsdóttur skrifstofustjóra, Veturliða Þór Stefánsson og Ingu Þóreyju Óskarsdóttur frá utanríkisráðuneyti.

Nefndin samþykkti að óska eftir afriti af samskiptum utanríkisráðuneytisins við stofnanir Evrópusambandsins og/eða samstarfsríki varðandi stöðu kjörræðismanns Íslands í Hvíta-Rússlandi, sbr. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa.