Bein útsending frá fundi um skýrslu peningastefnunefndar 11. nóvember

6.11.2015

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 11. nóvember kl. 9:00. Rætt verður um skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis 2015. Gestir frá Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og Katrín Ólafsdóttir lektor.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.