Bókun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 21. september, við umfjöllun um uppreist æru, reglur og framkvæmd

21.9.2017

Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í dag 21. september, við umfjöllun um uppreist æru, reglur og framkvæmd samþykkti nefndin samhljóða eftirfarandi bókun:

Meginafstaða umboðsmanns Alþingis er að eftir að hafa skoðað málið telji hann ekki ástæðu til frumkvæðisathugunar af hans hálfu.

Á fundi nefndarinnar benti umboðsmaður m.a. á að hafa verði í huga að ráðherrar eru annars vegar embættismenn og hins vegar stjórnmálamenn. Það kunni því að gilda mismunandi sjónarmið og reglur um störf og athafnir eftir því um hvort hlutverkið er að ræða. Þannig bendir hann á varðandi samtal  dómsmálaráðherra við forsætisráðherra 21. júlí sl. að hann telji að það hafi verið málefnaleg ástæða fyrir því að upplýsa forsætisráðherra um trúnaðargögn úr stjórnsýslumáli sem tengdust aðila nákomnum honum þar sem tilefnið hafi verið að þá hafi verið uppi vangaveltur um að forsætisráðherra hefði komið að afgreiðslu þessa tiltekna máls. Umboðsmaður bendir á að það geti einmitt skipt máli og verið eðlilegt til þess að taka afstöðu til hæfis í viðkomandi máli.  

Nefndin telur að framkvæmd mála sem varða umsóknir um uppreist æru hafi um árabil ekki verið í samræmi við kröfur sem gera verður til meðferðar mála í stjórnsýslunni. Þess vegna ríki einhugur um að taka þessar reglur um uppreist æru til gagngerrar endurskoðunar og þegar sé hafin vinna við endurskoðun þeirra laga.

Nefndin telur nauðsynlegt af þessu tilefni að taka beri til endurskoðunar reglur um framlagningu skjala og minnisblaða fyrir ríkisstjórn í samræmi við breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands frá 2011 og vinnubrögð við afgreiðslu beiðna um upplýsingar í anda upplýsingalaga. Einnig sé nauðsynlegt að endurskoða fyrirkomulag mála sem varða aðgengi almennings að gögnum og upplýsingum úr stjórnsýslunni sem sé ekki nægilega skilvirkt. Þannig þurfi að einfalda málsmeðferð og hraða úrskurðum eða úrlausnum mála til hagsbóta fyrir almenning enda skipti tímasetning aðgangs að upplýsingum meginmáli.