Nefndadagar 31. mars og 1. apríl

29.3.2022

Fimmtudagur 31. mars og föstudagur 1. apríl eru nefndadagar samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Þá funda nefndir allan daginn. Við ákvörðun um fundartíma nefnda er reynt að gæta samræmis og tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundarþörf.

Fimmtudagur 31. mars

  • kl. 9–12 Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
  • kl. 13–16 Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd

Föstudagur 1. apríl

  • kl. 9–12 Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
  • kl. 13–16 Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd


Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.