Nefndadagur föstudaginn 3. júní

30.5.2022

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er nefndadagur föstudaginn 3. júní. Að venju verður fundað bæði fyrir og eftir hádegi í nefndum. Við ákvörðun um fundartíma er reynt að gæta samræmis og mið tekið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefnda.

Föstudagur 3. júní

  • Kl. 9–12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.
  • Kl. 13–16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.

Endanlegir fundartímar og dagskrár birtast á vef Alþingis.