Nefndadagur mánudaginn 30. nóvember

30.11.2020

Mánudagurinn 30. nóvember er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi. 

Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.

Fundatafla

  • Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd
  • Kl. 15–18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd

Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.