Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd með peningastefnunefnd 26. mars – bein útsending

22.3.2012

Opinn fundur verður haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 26. mars 2012 kl. 9.30 til 11.00. Rætt verður um störf peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Gestir fundarins verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoega. Efni fundarins varðar störf peningastefnunefndar, sbr. 3. mgr. 24. gr. laga um Seðlabanka Íslands.

Dagskrá fundarins.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.