Upptaka af opnum fundi í atvinnuveganefnd með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 3. nóvember

3.11.2011

Opinn fundar var haldinn í atvinnuveganefnd Alþingis fimmtudaginn 3. nóvember 2011.Gestur fundarins var Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Rætt var um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi.

Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.

Bein útsending var frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Hljóð- og myndupptökur af fundinum eru á vefsíðu atvinnuveganefndar.