Upptaka af opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd 2. nóvember um dóm Hæstaréttar um gengistryggða lánasamninga

2.11.2011

Opinn fundur var haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd 2. nóvember um dóm Hæstaréttar í máli nr. 282/2011 um gengistryggða lánasamninga. Gestir fundarins voru frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Ríkisskattstjóra.

Kl. 09.30 Samtök fjármálafyrirtækja (Jóna Björk Guðnadóttir og Guðmundur Guðbjörnsson).
Kl. 10.00 Samtök iðnaðarins (Árni Jóhannsson og Sigurður B. Halldórsson).
Kl. 10.30 Embætti ríkisskattstjóra (Skúli Eggert Þórðarson, Ingvar J. Rögnvaldsson, Elín Alma Arthúrsdóttir og Jón Guðmundsson).

Bein útsending var frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. Hljóð- og myndupptökur af fundinum eru á vefsíðu efnahags- og viðskiptanefndar.