Opinn fundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis - bein útsending

13.11.2013

Opinn fundur verður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis föstudaginn 15. nóvember kl. 13:00. Til umfjöllunar á fundinum verður skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2012 (pdf).
 

Gestir á fundinum verða Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis, Berglind Bára Sigurjónsdóttur, skrifstofustjóri hjá embættinu og Hafstein Dan Kristjánsson aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone og í ríkissjónvarpinu.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.