Fréttamannafundur með Feneyjanefnd fimmtudaginn 17. janúar kl. 18.10 í Austurstræti 8-10

17.1.2013

Fréttamannafundur verður haldinn með fulltrúum Feneyjanefndarinnar fimmtudaginn 17. janúar kl. 18.10 -18.30. Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8 -10 á 2. hæð, gengið inn frá Austurvelli.

Feneyjanefnd Evrópuráðsins heldur fundi í Reykjavík dagana 17. og 18. janúar 2013 með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, fulltrúum stjórnlaganefndar og stjórnlagaráðs, fulltrúum stjórnmálasamtaka, fulltrúum félagasamtaka og ýmsum sérfræðingum um frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur, sem kunnugt er, óskað eftir að Feneyjanefndin gefi álit sitt á frumvarpinu.