Fundur allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis 11. október 2012 verður opinn fréttamönnum

10.10.2012

Fundur allsherjar- og menntamálanefndar 11. október 2012 opinn fréttamönnum Fundur allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis 11. október 2012 verður opinn fréttamönnum. Rætt verður um meðferð kynferðisafbrotamála, gestir verða frá neyðarmóttöku LSH, Stígamótum og Drekaslóð, fræðslu- og þjónustumiðstöð. Fundurinn hefst kl. 8.45. Dagskrá fundarins Fundurinn er haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir. Fundurinn er opinn fréttamönnum en verður hvorki tekinn upp né sent beint frá honum á vegum Alþingis. Fundurinn er haldinn með stoð í ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis..