Opinn fundur allsherjar- og menntamálanefndar fimmtudaginn 10. febrúar um íslenskan ríkisborgararétt

8.2.2022

Allsherjar- og menntamálanefnd heldur opinn fund fimmtudaginn 10. febrúar í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:10. Fundarefni er íslenskur ríkisborgararéttur. Gestur fundarins verður Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Af sóttvarnaástæðum geta gestir þó ekki verið í sama fundaherbergi og nefndarmenn á meðan fundurinn fer fram en geta fylgst með útsendingu fundarins í öðru rými.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.