Opinn fundur fjárlaganefndar miðvikudaginn 27. apríl um sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka

26.4.2022

Fjárlaganefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 27. apríl í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 kl. 9 til 11. Fundarefnið er sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka. Til fundarins koma fulltrúar Bankasýslunnar, þeir Jón Gunnar Jónsson forstjóri og Lárus Blöndal stjórnarformaður.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.