Opinn fundur í velferðarnefnd um fjármálaáætlun - bein útsending

26.4.2017

Föstudaginn 28. apríl verður opinn fundur í velferðarnefnd um fjármálaáætlun 2018-2022. Gestir fundarins verða frá Landspítalanum, María Heimisdóttir og Ólafur Baldursson.

 

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.