Opinn fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu umboðsmanns Alþingis 2018

7.10.2019

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund miðvikudaginn 9. október kl. 9-11. Efni fundarins er skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2018. Gestir verða Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Maren Albertsdóttir, aðstoðarmaður umboðsmanns, og Björn Friðrik Brynjólfsson, sérfræðingur.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd