Opinn fundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd verður með opinn fund þriðjudaginn 6. september n.k. kl. 9.00–10.30.
Til umfjöllunar á fundinum verður skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2015.
Gestir:
Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og fleiri starfsmenn umboðsmanns Alþingis.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.