Upptaka frá fundi um skýrslu rannsóknarnefndar um fall sparisjóðanna

3.5.2016

Upptaka frá opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 3. maí um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna.

Gestir fundarins voru: Frá Seðlabanka Íslands: Harpa Jónsdóttir og Gerður Ísberg. Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins: Ragnar Hafliðason, Björk Sigurgísladóttir, Guðmundur Jónsson og Gunnar Haraldsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Einnig Árni M. Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra (í síma), Guðlaugur Þ. Þórðarson, fyrrverandi settur fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra og Gylfi Magnússon fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.