Samantekt um þingmál

Innheimtulög

103. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að breyta lögunum með hliðsjón af reynslu við framkvæmd þeirra og með tilliti til athugasemda eftirlitsaðila.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingar snerta vernd fjár á fjárvörslureikningum, orðalag í innheimtuviðvörunum, hækkun starfsábyrgðartryggingar og flutning eftirlits með innheimtu opinberra aðila frá Fjármálaeftirliti til Neytendastofu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Innheimtulög nr. 95/2008.

  • Endurflutt: Innheimtulög, 705. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (30.03.2012)
  • Endurflutt: Innheimtulög, 643. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 139. þingi (28.03.2011)

Kostnaður og tekjur

Hefur lítil áhrif á útgjöld ríkissjóðs og rúmast væntanlega innan fjárheimilda.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir eru almennt jákvæðar og með minni háttar athugasemdum. Neytendasamtökin telja nokkrar breytingar nauðsynlegar til að tryggja betur hag neytenda og Neytendastofa, sem á að hafa eftirlit með innheimtuaðilum, telur frumvarpið ekki nægilega skýrt varðandi nokkur atriði. Auk þess mótmælir hún kostnaðarmati ráðuneytisins.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Fjölmiðlaumfjöllun

Happafengur fyrir óheiðarlega. RÍkisútvarpið 22.10.2012.

Bráðnauðsynleg réttarvernd. Ríkisútvarpið 23.10.2012.



Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.