Samantekt um þingmál

Lyfjalög

460. mál á 141. löggjafarþingi.
Velferðarráðherra.

Markmið

Að setja lagastoð fyrir innleiðingu á tilskipun ráðherraráðs Evrópusambandsins um skilyrði sem hafa áhrif á blöndun, markaðssetningu og notkun lyfjablandaðs fóðurs fyrir dýr.

Helstu breytingar og nýjungar

Kveðið er á um að Lyfjastofnun skuli hafa það hlutverk að fjalla um umsóknir og útgáfu innflutnings- og framleiðsluleyfa fyrir lyfjablandað fóður fyrir dýr. Einnig er lagt til að lagt verði á eftirlitsgjald vegna starfsemi innflytjenda og framleiðenda lyfjablandaðs fóðurs.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lyfjalög nr. 93/1994.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsögn barst frá Samtökum verslunar og þjónustu. Þar er meðal annars bent á að ekki sé að fullu ljóst af orðalagi 2. gr. frumvarpsins hvort leyfisskyldan taki eingöngu til innflutnings og/eða sölu á lyfjablönduðu fóðri eða einnig til sölu og/eða dreifingar á því fóðri.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með breytingum á lágmarksfjárhæðum gjaldtökuheimilda.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun ráðsins frá 26. mars 1990 um skilyrði sem hafa áhrif á blöndun, markaðssetningu og notkun lyfjablandaðs fóðurs í bandalaginu (90/167/EBE).
Íslandi stefnt fyrir EFTA-dómstólinn
. Frétt á vef ESA 28.11.2012.

Fjölmiðlaumfjöllun

EFTA stefnir Íslandi. Ruv.is 28.11.2012.


Síðast breytt 27.02.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.