Samantekt um þingmál

Vörugjöld og tollalög

473. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að auka tekjur ríkissjóðs og gera ýmsar hagrænar breytingar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að öll álagning vörugjalda verði hjá tollstjóra og að álagning vörugjalda á matvæli verði í réttu hlutfalli við viðbættan sykur eða ígildi hans í sætuefnum. Einnig eru lagðar til ýmsar breytingar á skipan tollskrár, einkum varðandi raftæki.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 97/1987 um vörugjald og tollalög nr. 88/2005.

Kostnaður og tekjur

Eykur tekjur ríkissjóðs um tæplega 800 milljónir kr.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust og mótmæltu flestar málatilbúnaði ráðuneytisins við þetta frumvarp.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar breytingum.


Síðast breytt 27.12.2012. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.