Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki

501. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Innleiðing tilskipana ESB og minni háttar lagfæringar.

Helstu breytingar og nýjungar

Helsta nýmælið er að lagt er til að nöfn þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár eða stofnfjár í fjármálafyrirtæki í lok reikningsárs verði tilgreind í ársreikningi fyrirtækisins. Þá eru lagðar til breytingar á hæfisreglum um lögmenn sem jafnframt sitja í stjórn fjármálafyrirtækis auk nokkurra lítilsháttar breytinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Athugasemdir umsagnaraðila eru jákvæðar en gerðar eru fjölmargar athugasemdir við óskýrt orðalag, ónákvæmni og skort á samræmi.

Afgreiðsla

Samþykkt sem lög með nokkrum breytingum sem einkum tengdust upplýsingaskyldu varðandi eigendur hlutafjár og hæfisreglum lögmanna.

Aðrar upplýsingar

Innleiða á þrjár tilskipanir Evrópusambandsins með þessum lögum.
Um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 2004/39/EB (MiFID-tilskipunin),
Um lánastofnanir, eigið fé og greiðsluþjónustu nr. 2009/111/EB og
Um rekstur lánastofnana, eiginfjárköfu og eftirlit nr. 2010/76/EB.


Síðast breytt 15.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.