Samantekt um þingmál

Endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi

605. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2015. Sett er sú kvöð á söluaðila að 3,5% heildarorku í eldsneyti til samgangna sé af endurnýjanlegum uppruna árið 2015 og 5% árið 2016. Þá eru gerðar kröfur um upplýsingagjöf og upprunavottorð frá framleiðendum og söluaðilum, sem sýna fram á að eldsneyti sé endurnýjanlegt. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að ríkissjóður verði af tekjum sem nema um 2 milljörðum króna á árunum 2015-2016.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru jákvæðar og athugasemdir minniháttar.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/28/EB frá 23. apríl 2009 um að hvetja til notkunar orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Breytingar á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (samningsafstaða Íslands).

Lög nr. 156/2010 um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (kerfisbreyting í skattlagningu ökutækja).

Efling græns hagkerfis á Íslandi (2011). Reykjavík. Skýrsla nefndar Alþingis um eflingu gæns hagkerfis.

Græna orkan. Klasasamstarf um orkuskipti.



Síðast breytt 04.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.