Samantekt um þingmál

Ársreikningar

94. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að skýra og lagfæra lög um ársreikninga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimild félaga til að hafa texta bókhaldsbóka og ársreikninga á dönsku eða ensku í stað íslensku verði víkkuð út til annarra félaga og félögum verði gert að upplýsa um að lágmarki 10 stærstu hluthafa og hundraðshluta hlutafjár, en ekki einungis eignarhluti yfir 10%. Þá eru lagðar til breytingar sem leiddar eru af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins sem tengist málinu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög nr. 79/2008, um endurskoðendur.

  • Endurflutt: ársreikningar, 700. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)
  • Skylt mál: Bókhald, 93. mál (atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra) á 141. þingi (14.09.2012)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á tekjur eða gjöld ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust og vakin er athygli á óljósu orðalagi og óskýrum skilgreiningum auk þess sem ekki sé samræmi við önnur lög hérlendis og erlendis. Í umsögn Viðskiptaráðs er vísað til alþjóðlegra reglna og Félag löggiltra endurskoðenda bendir á að æskilegt gæti verið að taka upp alþjóðlegan staðal um reikningsskil.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingum sem voru í samræmi við þær athugasemdir sem bárust varðandi óskýrt orðalag o.fl.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2009/49/EB þar sem móðurfélagi sem aðeins á dótturfélög sem skipta óverulegu máli, bæði ein og sér og sem heild, er veitt undanþága frá því að semja samstæðureikning.

IFRS Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar (íslenska). International Financial Reporting Standards (heimasíða). International Standard on Related Services nr. 4410.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af årsregnskabsloven LBK nr 323 af 11/04/2011.

Noregur
Lov om årsregnskap 1998-07-17-56.

Svíþjóð
Årsredovisningslag (1995:1554).




Síðast breytt 22.02.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.