Samantekt um þingmál

Stjórn fiskveiða o.fl.

4. mál á 142. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að gera ýmsar minniháttar breytingar á gildandi lögum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingarnar á ákvæði um stærðir krókaaflamarksbáta og eignarhald á fiskiskipum á strandveiðum. Einnig er gert ráð fyrir að heimildir Fiskistofu til leyfissviptinga vegna grásleppu- eða strandveiða verði skýrðar og að lagastoð fyrir gjaldtöku vegna ólögmæts sjávarafla verði styrkt.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.
  • Endurflutt: Stjórn fiskveiða, 447. mál (atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra) á 141. þingi (28.11.2012)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki teljandi áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Athugasemdir umsagnaraðila beindust einkum að stærðarmörkum krókaaflsbáta en einnig að heimildum Fiskistofu.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeim breytingum að stærðarmörkum krókaaflsbáta var breytt lítillega og bætt var inn ákvæði um sérstakan kvóta sem Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar fyrir sjávarbyggðir í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.


Síðast breytt 26.06.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.