Samantekt um þingmál

Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

138. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að einfalda stjórnsýslu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að Byggðastofnun taki við hlutverki Neytendastofu og sinni eftirleiðis daglegum rekstri flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara og annist greiðslur vegna flutningsjöfnunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði
olíuvara.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Ekki voru gerðar efnislegar athugasemdir við frumvarpið.

Afgreiðsla

Samþykkt með minnháttar breytingu.

Aðrar upplýsingar

Byggðastofnun

Neytendastofa



Síðast breytt 11.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.