Samantekt um þingmál

Flutningur verkefna frá innanríkisráðuneytinu til sýslumannsembætta

161. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Að bæta þjónustu og auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar. Frumvarpinu er ætlað að stuðla að auknu réttaröryggi borgaranna.

Helstu breytingar og nýjungar

Ýmis verkefni verða flutt frá aðalskrifstofu innanríkisráðuneytisins til undirstofnana þess. Útlendingastofnun tekur að sér hlutverk innanríkisráðuneytisins við veitingu ríkisborgararéttar, sýslumönnum verður falið að annast leyfisveitingar til opinberra fjársafnana auk annarra verkefna, náðunarnefnd verður sjálfstæð úrskurðarnefnd vegna samfélagsþjónustu og reynslulausnar og Fangelsismálastofnun verður falið vald til að ákveða að fullnusta refsidóma sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Meðal annars eru lagðar til breytingar á:
Lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952.
Barnalögum nr. 76/2003.
Lögum um fullnustu refsinga nr. 49/2005.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Í umsögnum voru gerðar athugasemdir við nokkrar greinar frumvarpsins. Meðal þeirra var athugasemd við að tekin væri út kæruleið til æðra stjórnvalds vegna mála samkvæmt 60. gr. barnalaga.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með breytingu á gildistökudegi, en lögin taka gildi 1. febrúar 2014.


Síðast breytt 02.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.