Samantekt um þingmál

Landsvirkjun

165. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að heimila yfirtöku Landsvirkjunar á Þeystareykjum ehf.

Helstu breytingar og nýjungar

Landsvirkjun verði heimilt að sameina Þeystareyki ehf. og Landsvirkjun en Þeystarreykir ehf. eru nú að fullu í eigu Landsvirkjunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 42/1983 um Landsvirkjun.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Athugasemd barst frá ríkisskattstjóra og var tekið tillit til hennar.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar breytingu til að tryggja að samruni fyrirtækjanna yrði ekki skattskyldur.

Aðrar upplýsingar

Landsvirkjun.

Þeystareykir.



Síðast breytt 11.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.