Samantekt um þingmál

Vátryggingastarfsemi og miðlun vátrygginga

168. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins er varðar vátryggingafélög og lagfæra ýmsa vankanta á núgildandi lögum.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingarnar snúa að auknum heimildum Fjármálaeftirlitsins til að hafa eftirlit og krefjast upplýsinga. Gerðar eru auknar kröfur um starfsleyfi vátryggingafélaga, meðal annars um eignir í efnahagsreikningi.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi og lögum nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar efnislegar athugasemdir bárust þar sem einkum var bent á að vanda þyrfti til verka í lagasetningu og samræma skilgreiningar í regluverkinu.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Önnur meginástæða þess að þetta frumvarp er lagt fram er athugasemd frá Eftirlitsstofnun EFTA ( ESA) um að innleiðingu tveggja tilskipana hafi verið ábótavant og hefur ESA hafið formlega málsmeðferð gegn íslenska ríkinu sökum þess. Um er að ræða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/17/EB frá 19. mars 2001, um endurskipulagningu og slit vátryggingafélaga, og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/92/EB frá 9. desember 2002, um miðlun vátrygginga.


Síðast breytt 01.04.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.