Samantekt um þingmál

Lax- og silungsveiði

198. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að félagsmenn veiðifélaga beri ekki persónulega ábyrgð á fjárskuldbindingum þess.

Helstu breytingar og nýjungar

Að félagsmenn veiðifélaga beri ekki persónulega ábyrgð á fjárskuldbindingum þess auk minniháttar lagfæringa. Breytingin er við 37. gr. laganna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Ekki komu fram efnislegar athugasemdir við frumvarpið.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 30.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.