Samantekt um þingmál

Opinber innkaup

220. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða Evróputilskipun varðandi opinber innkaup á öryggisbúnaði.

Helstu breytingar og nýjungar

Með innleiðingu tilskipunarinnar er ætlað að auðvelda opinberum stofnunum að fara í útboð á vöru-, þjónustu- og verksamningum á sviði öryggis- og varnarmála.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup.

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir bárust.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB um samræmingu reglna um útboð og gerð samningsyfirvalda eða samningsstofnana á tilteknum verksamningum, vörusamningum og þjónustusamningum á sviði varnar- og öryggismála (sjá fylgiskjal II).


Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.