Samantekt um þingmál

Hafnalög

234. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Að bregðast við fjárhagsvanda hafna.

Helstu breytingar og nýjungar

Heimilt verður fyrir íslenska ríkið að eiga og reka ferjumannvirki og hafnir sem sinna eingöngu samgöngum milli tveggja eða fleiri áfangastaða. Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um innheimtu þjónustugjalda og styrkhæfum framkvæmdum er skipt í fimm meginflokka. Bætt er við lögin ákvæði um neyðarhafnir.

Breytingar á lögum og tengd mál

Hafnalög nr. 61/2003.
  • Endurflutt: Hafnalög, 577. mál (innanríkisráðherra) á 141. þingi (11.02.2013)

Kostnaður og tekjur

Ekki er hægt að segja fyrir um aukinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar en athugasemdir voru gerðar við einstaka greinar. Meðal annars var lagt til að greiðsluþátttaka ríkissjóðs vegna endurbóta á höfnum væri 90% en 60% vegna nýframkvæmda. Einnig var lagt til að í stað orðsins neyðarhöfn væri notað hugtakið skipaafdrep. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Fjárhagsleg staða hafna (2008). Reykjavík: Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.


Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.