Samantekt um þingmál

Sjúkraskrár

24. mál á 143. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að taka af allan vafa um rétt borgarans til að bera synjun um aðgang að sjúkraskrá undir embætti landlæknis, hvort sem um er að ræða eigin sjúkraskrá eða sjúkraskrá látins aðstandanda. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimildir til að kæra til ráðherra synjanir og ákvarðanir um leiðréttingu eða eyðingu sjúkraskrárupplýsinga verði felldar brott. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúkrarskrár nr. 55/2009.
  • Endurflutt: Sjúkraskrár, 497. mál (velferðarráðherra) á 141. þingi (30.11.2012)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Athugasemdir í umsögnum lutu að flestum greinum frumvarpsins. Meðal gagnrýni var að ekki væri lengur mögulegt að kæra úrskurð um aðgang að sjúkraskrá til ráðherra.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með smávægilegum breytingum.


Síðast breytt 17.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.