Fjármálafyrirtæki
274. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Markmið
Að framlengja bráðabirgðaákvæði í núverandi lögum til ársloka 2015.Helstu breytingar og nýjungar
Ekki er um að ræða breytingar en ákvæðið veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til að grípa til sérstakra ráðstafana í samræmi við fyrirmæli þess til að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði.Breytingar á lögum og tengd mál
Bráðabirgðaákvæðið sem stefnt er að að framlengja er í lögum nr. 161/2002,um fjármálafyrirtæki, en kom upphaflega inn í lögin haustið 2008 með svokölluðum neyðarlögum, nr. 125/2008.
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs.Umsagnir (helstu atriði)
Í þeim athugasemdum sem bárust var ekki lagst gegn framlengingu ákvæðisins.Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.Aðrar upplýsingar
Skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra um framtíðarskipan fjármálakerfisins, 778. mál, 140. löggjafarþing, 11. maí 2012.
Heildarumgjörð um fjármálastöðugeika á Íslandi (2012). Tillögur þriggja manna hópsins til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.