Samantekt um þingmál

Fiskeldi

319. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að einfalda og auka skilvirkni leyfisveitinga og eftirlits vegna fiskeldis.

Helstu breytingar og nýjungar

Stjórnsýsla vegna útgáfu rekstrarleyfa til fiskeldis og eftirlit verði flutt til Matvælastofnunar frá Fiskistofu og  Umhverfisstofnun taki við hlutverki heilbrigðisnefnda sveitarfélaga varðandi útgáfu starfsleyfa fyrir eldi sjávar- og ferskvatnslífvera. Þá er lagt til að stofnaður verði sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins, umhverfissjóður sjókvíaeldis, sem hafi það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif sjókvíaeldis.

Breytingar á lögum og tengd mál

Aðalbreyting er á lögum um fiskeldi, nr. 71/2008, en einnig á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á nettóstöðu ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust og gerðar voru margar athugasemdir við einstaka greinar sem og frumvarpið í heild.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem einkum voru tæknilegs eðlis.


Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.