Samantekt um þingmál

Stimpilgjald

4. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að fá ný lög um stimpilgjald í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar og að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA.

Helstu breytingar og nýjungar

Gjaldskyldan nær einungis til þeirra skjala er varða eignayfirfærslu fasteigna hér á landi. Ekki verður lengur skylt að greiða stimpilgjald vegna lánsskjala, þ.m.t. vegna skilmálabreytinga á lánsskjölum, vegna hlutabréfa, kaupmála, leigusamninga og þess háttar. Lagt er til að stimpilgjaldið verði 0,8% þegar rétthafi er einstaklingur en 1,6% þegar rétthafi er lögaðili.

Breytingar á lögum og tengd mál

Fella á úr gildi lög nr. 36/1978 um stimpilgjald.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Gerðar eru nokkrar athugasemdir sem einkum beinast að því að gera lögin skýrari.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem þó hafa ekki áhrif á meginefni frumvarpsins.

Aðrar upplýsingar

Endurskoðun laga nr. 36/1978, um stimpilgjald: Skýrsla starfshóps á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis (2013). Fjármála- og efnahagsráðuneytið.


Síðast breytt 19.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.