Samantekt um þingmál

Mat á umhverfisáhrifum

467. mál á 143. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun ESB á réttan hátt.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framkvæmdir sem undir lögin falla verði flokkaðar í þrjá flokka í stað tveggja áður. Í flokk A falli framkvæmdir sem eru matsskyldar samkvæmt gildandi lögum, í flokk B falli framkvæmdir sem kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt gildandi lögum og í flokk C falli framkvæmdir sem hingað til hafa fallið utan viðmiðunarmarka laganna en er nauðsynlegt, í ljósi athugasemda ESA, að fella undir lögin. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 106/2000.

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir sem bárust gera flestar töluverðar athugasemdir við margar greinar og umsagnaraðilar telja töluvert skorta á skýrleika og samræmingu í frumvarpinu.

Afgreiðsla

Umhverfis- og samgöngunefnd fékk málið til umfjöllunar eftir 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun 85/337/EBE um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

Yfirlitsvefur ESB (Environmental Impact Assessment - EIA) um tilskipun um mat á áhrifum framkvæmda á umhverfið.

Tilskipun 2011/92/EBE um mat á umhverfisáhrifum.



Síðast breytt 21.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.