Samantekt um þingmál

Hollustuhættir og mengunarvarnir

95. mál á 143. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að innleiða ESB-gerðir um umhverfismerki, loftgæði og efri losunarmörk og styrkja framkvæmd evrópska og norræna umhverfismerkisins hér á landi.

Helstu breytingar og nýjungar

Tilskipanir ESB, um tiltekin loftmengunarefni og gæði andrúmslofts, verða styrktar í íslenskum rétti. Einnig verða skýrðar reglur um notkun umhverfismerkisins Svansins og evrópska umhverfismerkisins Blómsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkisins aukist um 44,5 milljónir en ekki er gert ráð fyrir þeim útgjaldaauka í frumvarpi til fjárlaga 2014.

Umsagnir (helstu atriði)

Í sameiginlegri athugasemd samtaka í atvinnurekstri koma fram ýmsar ábendingar varðandi framkvæmd væntanlegra laga og á hvern hátt þau eru frábrugðin því sem er í öðrum löndum.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni (þaktilskipunin).
Tilskipun 2008/50/EB um gæði andrúmslofts og hreinna loft í Evrópu (loftgæðatilskipunin).

Reglugerð 66/2010 um umhverfismerki Evrópusambandsins.

Svanurinn, norræna umhverfismerkið.
Blómið, umhverfismerki ESB.



Síðast breytt 27.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.