Samantekt um þingmál

Vátryggingarsamningar

120. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að auka samkeppni á tryggingamarkaði.

Helstu breytingar og nýjungar

Hægt er segja tryggingum upp með 30 daga fyrirvara og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðamót þar á eftir.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust og voru þær allar jákvæðar en gerðar voru lítilsháttar tillögur um breytingar.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem einkum miða að því að tryggja hag neytenda.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Noregur
Lov om forskikringsavtaler (forsikringsavtaleloven) LOV-2010-03-26-9 .

Danmörk
Bekendtgørelse av lov om finansiel virksomhed LBK nr 928 af 04/08/2013.



Síðast breytt 17.02.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.