Samantekt um þingmál

Sala fasteigna og skipa

208. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að tryggja neytendavernd í fasteignaviðskiptum.

Helstu breytingar og nýjungar

Einkaréttur fasteignasala til að hafa milligöngu um sölu atvinnufyrirtækja annarra en hlutafélaga verði afnuminn. Eftirlitsnefnd fasteignasala taki við kvörtunum ef talið er að fasteignasali hafi valdið tjóni. Lögð er til sú breyting á fyrirkomulagi prófa til löggildingar á störfum fasteignasala að háskólar sjái um námið.

Breytingar á lögum og tengd mál

Fella á úr gildi lög nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Verulegar efasemdir koma fram hjá umsagnaraðilum um að markmið frumvarpsins náist að óbreyttu og eru gerðar margar athugasemdir.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem eiga að tryggja fagmennsku og neytendavernd í fasteignaviðskiptum.


Síðast breytt 11.08.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.