Samantekt um þingmál

Mannanöfn

389. mál á 144. löggjafarþingi.
Óttarr Proppé.

Markmið

Að undirstrika þá meginreglu varðandi nöfn og nafngiftir að almennt skuli gert ráð fyrir því að nöfn séu leyfð, að foreldrum sé treyst til að velja börnum sínum nafn og að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar sé virt.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að mannanafnanefnd verði lögð niður. Einnig er lagt til að felld verði brott ákvæði mannanafnalaga varðandi ættarnöfn, ákvæði um að stúlkum skuli gefin kvenmannsnöfn og drengjum karlmannsnöfn, ákvæði um að nöfn megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi og ákvæði um að nafn megi ekki vera nafnbera til ama. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um mannanöfn nr.  45/1996.
  • Endurflutt: Mannanöfn, 200. mál (ÓP) á 143. þingi (27.11.2013)
  • Skylt mál: Mannanöfn, 83. mál (ÞorstV) á 148. þingi (22.01.2018)
  • Skylt mál: Mannanöfn, 22. mál (GE) á 154. þingi (01.12.2023)

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Umsagnir (helstu atriði)

Flestir þeirra sem veittu umsagnir töldu nauðsynlegt að eftirlit væri með mannanöfnum. Þó voru margir sammála því að æskilegt væri að auka svigrúm til að velja nafn. Bent var á nauðsyn heildarendurskoðunar mannanafnalaga.

Afgreiðsla

Afgreitt úr nefnd með frávísunartillögu til 2. umræðu.

Aðrar upplýsingar


Er þörf á endurskoðun mannanafnalaga? Innanríkisráðuneytið 11.3.2015.


Síðast breytt 03.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.