Haf- og vatnarannsóknir
391. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Markmið
Að sameina Hafrannsóknastofnun og Veiðimálastofnun 1. janúar 2016.Helstu breytingar og nýjungar
Ekki er um efnisbreytingar að ræða varðandi starfsemi stofnananna.Breytingar á lögum og tengd mál
Felld verða úr gildi lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, nr. 64/1965, sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og lög um Veiðimálastofnun, nr. 59/2006.- Skylt mál: Sameining Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar, 392. mál (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra) á 144. þingi (17.11.2014)
Kostnaður og tekjur
Talið er að þegar til lengri tíma sé litið náist fram hagræðing en í byrjun mun falla til kostnaður vegna húsnæðis og biðlaunaréttar, allt að 250 milljónum króna.Umsagnir (helstu atriði)
Umsagnir voru almennt jákvæðar en stéttarfélög hafa nokkar áhyggjur af réttarstöðu og starfsöryggi starfsmanna.Afgreiðsla
Afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.Aðrar upplýsingar
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti - greinargerð vegna mats á möguleikum til frekari samþættingar við framkvæmd verkefna stofnana ráðuneytisins (2010). ParX: Reykjavík.