Samantekt um þingmál
392. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Markmið
Að samræma lagatexta vegna sameiningar Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar.
Helstu breytingar og nýjungar
Breyta þarf ákvæðum laga sem eru með tilvísun til Hafrannsóknastofnunar eða Veiðimálastofnunar.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta þarf 18 lögum.
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.
Umsagnir (helstu atriði)
Tvær
umsagnir sem báðar eru jákvæðar.
Afgreiðsla
Afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.
Síðast breytt 07.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.