Samantekt um þingmál

Lögræðislög

687. mál á 144. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Markmið frumvarpsins er að bæta framkvæmd lögræðislaga og tryggja að lagaumhverfi og verklag sé í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á ákvæðum laganna til að undirbúa fullgildingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helstu breytingar varða ákvæði um lögræði, sviptingu lögræðis, meðal annars málsmeðferð, nauðungarvistanir, yfirlögráðendur og eftirlit þeirra með lögráðamönnum, skrár á grundvelli laganna og yfirfærslu verkefna frá ráðuneytinu til sýslumanna og Þjóðskrár Íslands.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lögræðislög nr. 71/1997.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum gæti kostnaður innanríkisráðuneytisins vegna starfa trúnaðarlæknis og ráðgjafa aukist um allt að 6 milljónir kr.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar ítarlegar umsagnir bárust. Meðal þess sem bent var á var að  í 2. gr. frumvarpsins er hámarkstími lögræðissviptingar ekki áskilinn og er hugsanlegt að það samræmist ekki ákvæðum 12. gr. samnings SÞ. Einnig var lýst yfir vonbrigðum með að ekki hefði verið ráðist í víðtækari breytingar á lögunum þótt margar af þeim breytingum sem lagðar eru til séu til bóta.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Skýrsla nefndar Evrópuráðsins gegn pyndingum (CPT).
Report to the Icelandic Government on the visit to Iceland carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 18 to 24 September 2012.

Svar íslenskra stjórnvalda.
Response of the Icelandic Government to the report of the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) on its visit to Iceland from 18 to 24 September 2012.



Síðast breytt 06.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.