Samantekt um þingmál

Stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl

691. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að kvótasetja markríl til sex ára.

Helstu breytingar og nýjungar

Af leyfilegum heildarafla í makríl verði 90% ráðstafað til fiskiskipa á grundvelli veiðireynslu á árunum 2011–2014, 5% verði ráðstafað sérstaklega til fiskiskipa sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum árin 2009–2014 og 5% verði ráðstafað í hlutfalli við þann hluta makrílafla skipa sem var unninn til manneldis á árunum 2009 og 2010. Kvóta verður úthlutað til sex ára sem framlengist árlega um eitt ár í senn að óbreyttu.

Breytingar á lögum og tengd mál

  • Skylt mál: Veiðigjöld, 692. mál (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra) á 144. þingi (01.04.2015)

Kostnaður og tekjur

Eykur tekjur ríkissjóðs um um það bil 1,5 milljarða króna á þessu ári.

Umsagnir (helstu atriði)

Flestir  umsagnaraðilar eru mjög gagnrýnir á frumvarpið.  

Aðrar upplýsingar

Fréttatilkynning atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um framlagningu frumvarpsins 1. apríl 2015.

Álit umboðsmanns Alþingis. Sjávarútvegsmál. Stjórn fiskveiða. Úthlutun aflaheimilda. Aflahlutdeildarsetning makríls. Lögmætisreglan. Meinbugir á lögum. (Mál nr.7021/2012 og 7400/2013).

Vakin er athygli á ítarlegri skýrslu um makrílveiðar í greinargerð frumvarpsins.



Síðast breytt 03.06.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.