Samantekt um þingmál

Visthönnun vöru sem notar orku

98. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að innleiða Evróputilskipun.

Helstu breytingar og nýjungar

Helsta breyting felst í því að lögin munu ná til allra orkutengdra vara í stað þess að ná eingöngu til vara sem nota orku. Aðrar breytingar eru minni háttar og tengjast innleiðingu á nýrri Evróputilskipun auk þess sem valdheimildir Mannvirkjastofnunar vegna eftirlits og brota á lögunum verða tryggðar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, og innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB frá 21. október 2009.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsögn barst frá Neytendastofu sem mótmælti flutningi verkefna til Mannvirkjastofnunar.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Neytendastofa.

Mannvirkjastofnun.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB, um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur.



Síðast breytt 29.10.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.