Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

132. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að bregðast við vanda lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.

Helstu breytingar og nýjungar

Samkvæmt núgildandi ákvæði má munurinn á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga ekki vera meiri en 10%  en komið hefur í ljós að hann er meiri og þess vegna er heimildin hækkuð í 15%. Heimildin er tímabundin en unnið er að varanlegri lausn á vanda lífeyrissjóðsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Verið er að breyta lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997.

Kostnaður og tekjur

Hefur hvorki áhrif á ríkissjóð né fjárhag sveitarfélaga.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga.


Síðast breytt 24.09.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.