Peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
139. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.
Markmið
Að styrkja regluverk er snýr að peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Að samræma löggjöf við tilmæli alþjóðlega framkvæmdahópsins FATF.Helstu breytingar og nýjungar
Gerð verður ríkari krafa um áreiðanleikakannanir af hálfu tilkynningarskyldra aðila. Lagt er til að gerð þeirra miðist við tiltekna viðmiðunarfjárhæð. Einnig er lagt til að tilkynningarskyldir aðilar beri kennsl á raunverulegan eiganda fjár og að fjármálastofnanir hafi virkt eftirlit með því hvort viðskiptavinir komi fram í eigin nafni.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006.- Endurflutt: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 729. mál (innanríkisráðherra) á 144. þingi (27.04.2015)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.Umsagnir (helstu atriði)
Umsögn barst frá Samtökum fjármálafyrirtækja sem lögðu áherslu á lögfestingu frumvarpsins.Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.