Samantekt um þingmál

Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni

229. mál á 145. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að stuðla að vandaðri framkvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni. 

Helstu breytingar og nýjungar

Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni verður heimiluð. Sérstök nefnd mun veita leyfi til staðgöngumæðrunar. Sett eru skilyrði sem staðgöngumóðir þarf að uppfylla og kveðið á um skilyrði fyrir væntanlega foreldra. Óheimilt verður að nota kynfrumur staðgöngumóður og skylt verður að nota kynfrumu frá að minnsta kosti öðru væntanlegra foreldra. Barni er tryggður réttur til að þekkja uppruna sinn. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna nr.  55/1996.
Barnalög nr.  76/2003.
Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr.  95/2000.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 4 milljónir króna árið 2017 en um 3,5 milljónir króna á ári eftir það. 

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrir  umsagnaraðilar töldu að frumvarpið væri ekki tímabært. RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum, lagðist gegn samþykkt þess. Samtökin Staðganga og Tilvera mæltu með samþykkt frumvarpsins en gerðu jafnframt athugasemdir við einstaka greinar. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun. Heilbrigðisráðuneytið, 5. febrúar 2010.
Hrefna Friðriksdóttir. Ættleiðingar á Íslandi : í þágu hagsmuna barns. Innanríkisráðuneytið, mars 2011. 

Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk

Bekendtgørelse af adoptionsloven LBK nr 1084 af 07/10/2014.
Grein 33: Formidling af surrogatmoderskab.

Bekendtgørelse af lov om assisteret reproduktion i forbindelse med behandling, diagnostik og forskning m.v. LBK nr 93 af 19/01/2015.
Sjá kafla 3 gr. 13.

Noregur
Lov om humanmedisinsk bruk av bioteknologi m.m. (bioteknologiloven). LOV-2003-12-05-100.

Midlertidig lov om overføring av foreldreskap for barn i Norge født av surrogatmor i utlandet mv. LOV-2013-03-08-9  Lögin gilda til 31. desember 2015.

Lov om norsk statsborgerskap (statsborgerloven) LOV-2005-06-10-51.
Kafli 2, gr. 5a.

Svíþjóð
Lag ( 2006:351) om genetisk integritet m.m.
Sjá 6. kap. Insemination og 7. kap. Befruktning utanför kroppen.

Finnland
Lag om assisterad befruktning 22.12.2006/1237.
Sjá 2. kafla 8. gr. lið 6.


Síðast breytt 17.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.