Samantekt um þingmál

Vextir og verðtrygging o.fl.

384. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að heimila neytendalán í erlendum gjaldmiðlum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sömu heimildir verði látnar gilda um lánveitingar í erlendum gjaldmiðlum og gengistryggð lán í íslenskum krónum en  Seðlabanka Íslands verði heimilt að setja lánastofnunum reglur um hámark slíkra lánveitinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, lögum um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 og lögum um neytendalán nr. 33/2013.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar

Rökstutt áliti Eftirlitsstofnunar EFTA frá 22. maí 2013 um að Ísland verði að afnema bann við veitingu gengistryggðra lán í íslenskum krónum.
Leiðbeinandi tilmæli Evrópska kerfisáhætturáðsins (ESRB) um lánveitingar í erlendum gjaldmiðlum.


Síðast breytt 30.11.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.